Lífstykkjabúðin, Laugavegi 82, er eitt elsta verslunarfyrirtæki landsins, en verslunina stofnaði Elísabet Foss árið 1916. Hún var þá ekkja með tvö börn. Búðin var í byrjun staðsett í Hafnarstræti, en síðar á Laugavegi. Elísabet var merkileg kona og frumkvöðull á sínu sviði, en afar fátítt var að konur rækju fyrirtæki á þeim árum.
Núverandi eigandi Lífstykkjabúðarinnar er Guðrún Steingrímsdóttir, sem tók við versluninni árið 1993 af Þóri Skarphéðinssyni. Guðrún hafði lengi verið viðriðin verslunarrekstur og sá þarna gullið tækifæri.
Samhliða versluninni hafði lengi verið starfrækt saumastofa sem sá um að sauma lífstykki, brjóstahöld og mjaðmabelti á íslenskar konur á árum áður, en hér áður fyrr var lífstykkjasaumur viðurkennd iðngrein.
Margt hefur hins vegar breyst frá því að saumastofa Lífstykkjabúðarinnar framleiddi undirfatnað fyrir íslenskar konur og er úrvalið og tískan óneitanlega önnur í dag. Nú er allt flutt inn erlendis frá og meiri áhersla lögð á tískustrauma og kynþokkafulla hönnun.
Heimild: Morgunblaðið, 20. júlí 2006.