Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg fagna þeirri ákvörðun Landsbanka Íslands hf. að reisa nýjar höfuðstöðvar í miðbæ Reykjavíkur. Landsbankinn er eina stórfyrirtækið sem enn hefur höfuðstöðvar sínar í Kvosinni, en skammt er síðan skrifstofur Landssímans, Tryggingamiðstöðvarinnar, Eimskipafélagsins, Búnaðarbankans og fleiri fyrirtækja hurfu úr Kvosinni.
Ákvörðun bankans lýsir stórhug og metnaði fyrir hönd miðbæjarins og gefur vonir um nýtt sóknarskeið með fjölbreyttara mannlífi og aukinni verslun og þjónustu á þessu svæði.
Þá sjá Samtökin ástæðu til að taka undir með hugmyndum Hjálmars Sveinssonar, formanns skipulagsráðs borgarinnar, um að skóli eða stofnun af því tagi fái aðstöðu í gamla Landsbankahúsinu í framtíðinni. Flutningur Landsbankans á Hörpureitin gefur einstakt tækifæri til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í Kvosinni, sem vonandi verður sem fjölbreyttust.
Björn Jón Bragasson tekur kaupmenn tali á Laugaveginum.
Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg hafa síðustu daga fært öllum kaupmönnum við Laugaveg strákústa að gjöf. Samtök kaupmanna við götuna vilja með þessu ganga fram með góðu fordæmi og hvetja borgaryfirvöld til að bæta viðhald og aðra umhirðu í miðbænum.
Í bréfi sem fylgdi strákústunum voru kaupmennirnir hvattir til að sýna gott fordæmi í umhirðu borgarinnar. Það sé til mikils að vinna að fegra borgina og endurvekja gamla slagorðið „hrein torg – fögur borg“.
Snyrtilegra umhverfi eykur lífsgæði okkar allra.
Gunnar Guðjónsson, formaður Samtaka kaupmanna við Laugaveg, og Björn Jón Bragason, framkvæmdastjóri Samtakanna, með hluta kústanna.
Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg mótmæla málflutningi Hjálmars Sveinssonar, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, sem í fréttum ríkisútvarpsins á sunnudag lagði til að Laugavegi yrði lokað fyrir bílaumferð frá 1. maí til 1. október.
Samtökin hafa áður bent á skaðleg áhrif lokunar á verslun við Íslendinga og hafa kært fyrri ákvörðun borgarinnar um lokun til innanríkisráðuneytis. Ráðuneytið hefur ekki kveðið upp úrskurð sinn og fráleitt að ræða um lokun áður en ráðuneytið hefur komist að niðurstöðu.
Laugavegurinn er eina skilgreinda verslunargata borgarinnar og til mikils að vinna að verslun þar fáist þrifist. Það gerist ekki nema í góðu samráði við hagsmunaaðila og brýnt að formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar láti af skæruhernaði gegn atvinnulífi í borginni. Ekki hefur örlað á vilja formanns umhverfis- og skipulagsráðs til samráðs við rekstraraðila og eigendur atvinnuhúsnæðis við götuna.
Hafi borgaryfirvöld áhuga á lokun er rétt að greitt verði um það atkvæði meðal rekstraraðila og eigenda atvinnuhúsnæðis á svæðinu. Of miklir atvinnuhagsmunir og eignarréttindi eru í húfi til að ákvörðun af þessu tagi sé tekin einhliða af borgaryfirvöldum.
Göngugata getur verið skemmtileg tilbreytni á sólríkum dögum, en í rigningu og sudda er engum til gagns að loka fyrir umferð. Möguleg lokun götunnar verður að vera á forsendum verslunarinnar sjálfrar. Þar mætti til dæmis hugsa sér svokallaða góðviðrislokun.
Hinn 9. júlí síðastliðinn sendi lögmannsstofan Lex kæru fyrir hönd Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg til innanríkisráðherra, þar sem þess var krafist að ráðherra felldi út gildi ákvörðun Reykjavíkurborgar um lokun Laugavegar, sem samþykkt var 26. maí síðastliðinn. Kæran er studd ýtarlegum gögnum og lá mikil vinna að baki henni. Gerð var sú krafa að réttaráhrifum ákvörðunar um lokun yrði frestað meðan kæran væri til meðferðar í ráðuneytinu, sbr. 2. mgr. 114. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Afar brýnt var að réttaráhrifum yrði frestað svo frekari tjóni vegna lokunar yrði afstýrt. Hins vegar fengust engin svör frá ráðuneytinu eftir að kæran hafði verið móttekin. Þess vegna var farin sú leið að óska eftir fundi með ráðherra sem til stóð að haldinn yrði 6. ágúst síðastliðinn. Tæpri klukkustund áður en fundurinn átti að hefjast hafði ritari ráðherra samband við framkvæmdastjóra Samtakanna og tilkynnti honum að ekki gæti orðið af fundi, þar sem ráðherrann væri á leið út á landi í embættiserindum.
Nýr fundur var boðaður degi síðar og þangað mættu fulltrúar Samtakanna með lögmanni sínum. Eftir nokkra bið kom aðstoðarmaður ráðherra fram og tilkynnti að hér væri misskilningur á ferðum, þar sem ráðherrann mætti ekki hitta fulltrúa Samtakanna, þar eð ráðuneytið yrði þar með vanhæft til meðferðar málsins. Ráðherra hefði ekki heimild til að hitta málsaðila.
Þess í stað fengu fulltrúar Samtakanna fund með aðstoðarmanni ráðherra og aðallögfræðingi ráðuneytisins. Í máli aðallögfræðingsins kom fram að hvorki hún ná aðrir embættismenn ráðuneytisins hefðu lesið kæruna og borið var við önnum. Því var komið á framfæri að þessi dráttur ylli kærendum miklu tjóni, enda hafði verið farið fram á að réttaráhrifum ákvörðunar borgaryfirvalda yrði umsvifalaust frestað.
Lögmaður Samtakanna og fulltrúar þeirra reifuðu málið á fundinum og ítrekuðu mikilvægi þess að málið yrði tekið fyrir hið snarasta. Embættismennirnir sýndu málstaðnum mikinn skilning en gátu ekki gefið upplýsingar um það hvenær ákvörðunar væri að vænta.
Í apríl síðastliðnum áttu fulltrúar Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg fund með átta embættismönnum frá jafnmörgum undirdeildum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar vegna fyrirhugðra framkvæmda við Laugaveg, en borgin hafði þá kynnt að fyrir dyrum stæði að „endurhanna“ allan Laugaveg frá Hlemmi og að Skólavörðustíg. Að því tilefni komu Samtökin á framfæri við borgina ýtarlegum athugasemdum, sem birtust hér á heimasíðunni.
Framkvæmdastjóri Samtakanna sendi fyrirspurn til borgaryfirvalda fyrr í sumar og leitaði upplýsinga um það hvar málið væri statt. Svar barst ekki fyrr en með miklum eftirgangsmunum. Þar kom fram í máli Ólafs Bjarnasonar samgöngustjóra að „áform um endurgerð Laugavegar“ standi þannig að auglýst hafi verið forval hönnuða til samkeppni um útfærslu götunnar og hefðu áhugasamir aðilar frest til 15. ágúst til að gefa sig fram. Að því loknu yrðu fimm „hönnunarhópar“ valdir til samkeppni á útfærslu götunnar.
Í útvarpsviðtali á Rás 2 á sunnudagsmorguninn var lýsti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri því yfir að hann vildi reiðhjólastíga á Laugavegi. Samtökin hafa ítrekað lýst andstöðu sinni við að lagðir verði reiðhjólastígar á Laugavegi, vegna plássleysis, og þá er nærtækt að benda á að reiðhjólastígar hafa verið lagðir beggja vegna Hverfisgötu, en eru þó lítið notaðir.
Helst að öllu þyrfti að hvíla Laugaveginn fyrir stórframkvæmdum næstu árin, en verja þess í stað fjármunum til viðhalds. Víða eru götuvitar skakkir, skilti brotin, gangstéttarhellur aflaga og tré ekki klippt. Mun brýnna er að sinna nauðsynlegu viðhaldi, en ráðast í afar dýrar framkvæmdir, sem munu valda miklu raski. Rask vegna framkvæmda við Hverfisgötu og Klapparstíg hefur valdið versluninni miklu tjóni undanfarin misseri og brýnt ekki verði farið í framkvæmdir á Laugavegi sjálfum á næstunni.
Sama gildir um Frakkastíg, en þar er gert ráð fyrir framkvæmdum á næsta ári, en til stendur að fjarlægja öll bílastæði vestan megin götunnar til að rýma fyrir reiðhjólastíg, en austan megin er gert ráð fyrir að sárafá stæði verði eftir. Samtökin hafa áður lýst yfir andstöðu sinni við þessi áform og hvetja borgaryfirvöld til að hverfa frá þeim, enda má verslunin ekki við frekari fækkun stæða. Um þriðjungur hótelgesta er á bílaleigubílum svo þörf fyrir bílastæði í miðbænum fer hratt vaxandi.
Stjórn Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg (hér eftir nefnt Samtök kaupmanna) lýsir yfir ánægju sinni með að borgaryfirvöld vilji bæta umhverfi Laugavegar, en lýsir að sama skapi yfir áhyggjum vegna mikils rasks sem mun fylgja framkvæmdum. Telur stjórnin rétt að hvíla götuna fyrir framkvæmdum um sinn eða að þær verði unnar í áföngum. Þá verði leitað allra leiða til að draga úr raski og að borgaryfirvöld komi fram með raunverulegar mótvægisaðgerðir, til dæmis með því að viðskiptavinir fengju að leggja án endurgjalds í bílastæðahúsum meðan á framkvæmdum stendur, eða með sérstökum miðbæjarstrætisvagni sem verði gjaldfrjáls.
Hér að neðan eru margvíslegar athugasemdir Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Umferð um götuna
Samtök kaupmanna lýsa þungum áhyggjum af sífellt minni umferð um götuna, en árið 2007 var sólarhringsumferð á Laugavegi milli Snorrabrautar og Barónsstígs um 5500 bílar. Árið 2012 var sólarhringsumferð um 3500 bílar á neðsta hluta götunnar. Þrátt fyrir að samanburðurinn sé ekki fyrir nákvæmlega sama kafla er ljóst að umferð um götuna hefur snarminnkað á allra seinustu árum. Umferðina þarf að auka á nýjan leik, til að mynd með því að afnema þrengingar á ofanverðum Laugavegi, taka burtu þrengingar á Snorrabraut og með átaki þar sem borgarbúar yrðu hvattir til að „fara á rúntinn“. Laugavegurinn er aðalumferðaræðin í gegnum miðbæinn. Honum má líkja við slagæð í blóðrásarkerfi. Þegar lokað var fyrir umferð um Austurstræti 1973 leið ekki að löngu uns allt líf dó þar fyrir vestan, þ.e.a.s. í Kvosinni. Rétt er því að leita allra leiða til að auka umferð um götuna. Í því tilliti er rétt að hafa í huga að umferðin er hæg og ógnar engum, auk þess sem fólksbifreiðar menga mun minna nú en þær gerðu fyrir fáeinum áratugum.
Hjólreiðar
Samtök kaupmanna leggja mikla áherslu á að á nýjan leik verði lagt bann við hjólreiðum á gangstéttum, en því banni var aflétt sumarið 2012. Síðan þá hafa nokkur slys orðið á gangandi vegfarendum og ítrekað legið við slysum. Þá leggjast Samtökin gegn sérstökum hjólaakreinum við götuna, enda ekki rúm fyrir þær. Eðlilegast er að reiðhjólum sé ekið á götunni sjálfri. Þeir reiðhjólamenn sem þurfa að hjóla hraðar geta aftur á móti notast við reiðhjólastígana á Hverfisgötu. Umferð um Laugaveginn sjálfan á að vera hæg.
Lýsing
Kaupmenn hafa sumir kvartað undan ónógri lýsingu við götuna. Rétt væri að leita leiða til að auka lýsinguna, með sterkari perum eða fleiri ljósastaurum.
Lokun götunnar
Í skýrslu borginnar er rætt um lokun götunnar fyrir bílaumferð. Þær lokanir hafa mætt mikilli andstöðu hagsmunaaðila og telja Samtök kaupmanna brýnt að götunni verði ekki lokað nema á forsendum verslunarinnar sjálfrar og þá að undangenginni atkvæðagreiðslu meðal hagsmunaaðila. Í þessu sambandi hefur komið upp sú hugmynd að loka götunni fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum yfir sumarmánuðina, en allsherjarlokun skilar engum árangri og er til skaða, enda fáir sem hafa áhuga á að spóka sig um á Laugaveginum í úrhellisrigningu, svo dæmi sé nefnt. Þá er Laugavegurinn aðalumferðaræðin í gegnum miðbæinn og því hættulegt fyrir atvinnureksturinn að loka honum fyrir bílaumferð. Verslun við Austurstræti hvarf nánast alveg eftir að þeirri götu var lokað fyrir bílaumferð og allar tilraunir í þessa veru eru hættulegar.
Sigurður E. Haraldsson í Versluninni Elfur sagði í blaðaviðtali árið 1982:
„Ég held að kaupmenn óttist það mest að ekkert verði við þá talað áður en stórar ákvarðanir eru teknar varðandi framtíð Laugavegarins og miðbæjarins. Menn óttast að vakna upp einn morguninn við það að Laugavegurinn sé orðinn að göngugötu … Það er bara svo margt sem verður að gera fyrst áður en svo stórt skref er stigið. T.d. verður að sjá fyrir bílastæðum alveg við Laugaveginn, ekki langt niður við Skúlagötu, eins og stungið hefur verið upp á. Fólk vill geta ekið á sínum bíl sem næst þeim stað sem það ætlar á.“
Trjágróður og almennt viðhald
Samtök kaupmanna geta tekið undir það að aspir þær sem plantað var við götuna á sínum tíma séu sumar að minnsta kosti lítt til prýði. Að sama skapi verður að hafa í huga að trjáklippingum er lítt sinnt og trén fá að verða úr sér vaxin. Þá kemur að öðru, sem er almennt viðhald á eignum borgarinnar í götunni, en víða er látið óátalið að umferðarskilti séu beygluð, pollar rammskakkir og gangstéttarhellur úr lagi með tilheyrandi slysahættu. Það er ekki góð meðferð á fjármunum borgarbúa að efna til afar kostnaðarsamra framkvæmda, en halda götunni ekki við. Því má halda fram að frekar sé þörf á almennu viðhaldi, en endurhönnun, líkt og nú er boðað. Verði nýjum trjám plantað er brýnt að hirða þau vel. Að sama skapi þarf að huga að því hvort og hvernig tré geti skapað skjól á svæðinu, sér í lagi fyrir norðanáttinni.
Bílastæði
Samtök kaupmanna leggja afar mikla áherslu á að stæðum verði ekki fækkað við götuna. Verslun þrífst um þessar mundir best fyrir innan Frakkastígs, milli Frakkastígs og Vitastígs, en þar eru líka mun fleiri stæði en neðar. Þóra heitin Sigurðardóttir og fjölskylda starfrækti um áratugaskeið verslunina Olympiu, á Laugavegi 26, en verslunin var flutt af Laugaveginum eftir mikla fækkun bílastæða á því svæði. Um það mál sagði Þóra í viðtali við Morgunblaðið:
„En svo breyttist allt þegar Laugavegurinn var gerður að göngugötu og trjáræktarsvæði, þá gat maður bókstaflega lokað og það gerðum við og fluttum verslunina upp í Kringlu.“
Fjölga þarf stæðum á kaflanum milli Skólavörðustígs og Frakkastígs. Ekki nægir að nefna að finna megi stæði nokkur hundruð metrum fjær. Það hentar ekki öllum að ganga langa leið að versluninni. Fleiri stæði nær versluninni myndu verða mikil lyftistöng fyrir hana á þessum kafla.
Þá telja Samtökin rétt að gera tilraun með gjaldfrjáls bílastæði á Laugavegi með svokallaðri bílaklukku sem notuð er mjög víða á meginlandi Evrópu. Eina markmið gjaldtökunnar er að stýra flæðinu í bílastæðin, en því má stýra með mun einfaldari og þægilegri hætti. Gjaldskyldan ein og sér er heimill á að fólk komi í bæinn. Þá fer það vel við markmið borgaryfirvalda að fækka „götugögnum“ að fjarlægja stöðumælana af götunni. Rétt er að hafa í huga að fasteignaeigendur hafa marggreitt fyrir bílastæðin með gjöldum til borgarinnar.
Samkvæmt nýlegum áætlunum er um þriðjungur gesta á hótelum í miðbænum á bílaleigubílum. Á Laugavegi 66 er gert ráð fyrir um eitt hundrað herbergjum, en engu nýju bílastæði. Þeirri spurningu er ekki svarað hvar eigi að leggja þessum ríflega þrjátíu bílum sem fylgja gestum á háannatíma. Því skiptir einnig miklu að stæðum verði ekki fækkað í nágrenninu og horfið frá fyrirtætlun um að fjarlægja öll bílastæði vestan megin Frakkastígs.
Skiptar skoðanir eru meðal kaupmanna um það hvort betra sé að stæðin séu samsíða götunni eða skástæði. Þar sem skástæðin eru ríkir almenn ánægja meðal kaupmanna. Þau eru öruggari fyrir barnafólk og einfaldara er að leggja í þau. Hins vegar eru þau illa römmuð inn sem gerir það að verkum að margir leggja inn á gangstéttina. Erfiðara er að leggja í samsíða stæði, en á móti kemur að með þeim er auðveldara að sjá inn í búðarglugga frá götunni, sem auðveldar „window shopping“.
Hreinlæti
Fjölga þarf ruslastömpum við götuna og einnig þarf að huga að almenningssalernum, en engin almenningssalerni eru við Laugaveginn. Sóðaskapurinn er mikill í miðbænum og hefur aukist með fleiri öldurúsum. Edda Hauksdóttir kaupmaður í Stellu í Bankastræti orðaði þetta vel í viðtali fyrir nokkrum árum:
„Það er víst óhætt að segja að hreinsun í miðbænum sé algjörlega í lágmarki og borgum við þó hæstu fasteignagjöldin hérí miðbænum. Fólk vill koma í miðbæinn til að skoða í búðir og fá sér kaffi, ekki til að vaða ryk, sand og gosdrykkjaumbúðir upp í ökkla.“
Að lokum
Við fyrirhugaðar framkvæmdir við Laugaveg er mikilvægast af öllu að huga að því sem bætt geti skilyrði verslunar við götuna og þá almennrar smásöluverslunar við Íslendinga. Eini vaxtarbroddurinn í verslun á þessu svæði á umliðnum árum hefur verið verslun við erlenda ferðamenn á sama tíma og verslun við Íslendinga hefur dalað mikið.
Í fyrirliggjandi tillögum að endurhönnun Laugavegar, sem og þeim kafla aðalskipulagsins sem lýtur að miðbænum, skortir mjög á að hugað sé að skilyrðum verslunar. Verslunin verður alltaf kjarnastarfsemin í blómlegum miðbæ, önnur þjónusta fylgir, og þegar versluninni hnignar tekur alltaf lakari starfsemi við. Það er sú þróun sem átt hefur sér stað á Laugavegi undanfarna áratugi og sú þróun gekk svo langt í Kvosinni að verslun hreinlega lagðist þar af. Þórir Sigurbjörnsson, kaupmaður í Vísi, sagði í blaðaviðtali árið 2003 að það væri
„skelfilegt að horfa upp á það á sama tíma að einu fyrirtækin sem fylli skarð þjónustufyrirtækja sem hverfi á brott úr miðborginni séu veitinga- og skemmtistaðir. Hann heyri það á fólki að það vilji ekki sjá miðborgina þróast í þá átt sem hún sé að gera og sjálfur vill hann sjá miðborgina fyrst og fremst sem verslunarsvæði en ekki „ölsvæði“.“
Borgaryfirvöldum hlýtur að vera annt um að blómleg verslun fái þrifist í miðbænum og fara Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg þess á leit við borgaryfirvöld að fullt tillit verði tekið til allra framkominna athugasemda Samtakanna og til þeirra leitað við alla áframhaldandi vinnu við þetta verkefni.
Margir kaupmenn í Samtökunum hafa starfað við verslun í miðbænum í um og yfir fjörutíu ár og staðið í stappi við borgaryfirvöld, allt frá dögum Geirs Hallgrímssonar í stóli borgarstjóra. Því miður hafa fjölmörg blómleg fyrirtæki í miðbænum lagt upp laupana á umliðnum áratugum, ellegar flust annað. Ólafur Vigfússon, kaupmaður í Veiðimanninum, orðaði þetta vel fyrir nokkrum árum í blaðaviðtali:
„Ákvörðunin um að loka versluninni var sársaukafull en erfitt hefur verið að horfa upp á hnignum miðbæjarins og samdrátt í verslun á sama tíma og aðrar verslanir fyrirtækisins blómstra sem aldrei fyrr … Ekki er loku fyrir það skotið að Veiðimaðurinn verði opnaður á ný í gamla miðbænum þegar borgaryfirvöld framtíðarinnar hafa áttað sig á því að miðborgin verður aldrei lifandi án blómlegrar verslunar og skapa starfsumhverfi til að svo megi verða.“
Vonandi rennur brátt upp sá tími að borgaryfirvöld taki upp raunverulegt samráð við kaupmenn í miðbænum.
Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg gengust fyrir opnum fundi á Sólon í hádeginu 13. mars síðastliðinn undir yfirskriftinni „Framtíð verslunar í miðbænum“. Allir flokkar sem bjóða fram til borgarstjórnar áttu sinn fulltrúa á fundinum. Fundurinn var vel sóttur, en fundarmenn voru ríflega fimmtíu talsins og spunnust líflegar umræður að loknum framsögum stjórnmálamannanna.
Kaupmenn fundu að því að skort hefði á í framsögum að þeirri spurningu væri svarað hver framtíð verslunar í miðbænum væri, en megininntakið í fyrirspurnum kaupmanna var að það skorti mjög á samráð og samráð væri ekki fólgið í því tilkynna kaupmönnum með nokkurra vikna fyrirvara að til stæði að ráðast í mjög umfangsmiklar framkvæmdir, líkt og raunin var með Hverfisgötu. Samráð feli í sér að kaupmenn séu spurðir álits og hafðir með í ráðum allt frá byrjun þegar ákvarðanir eru teknar er varða málefni miðbæjarins.
Verslun er grunnatvinnugreinin í öllum blómlegum miðbæjum. Önnur þjónusta fylgir. Því skiptir meginmáli að huga að öllu því sem orðið getur til að efla verslun í miðbænum.
Fimmtudaginn 13. mars efna Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg til opins fundar í hádeginu undir yfirskriftinni „Framtíð verslunar í miðbænum“. Öll framboð sem bjóða fram til borgarstjórnar munu eiga sinn fulltrúa á fundinum, sem verður með léttu sniði, en í upphafi fundarins hefur hver frambjóðandi fimm mínútur til að segja frá áherslum síns framboðs í málefnum miðbæjarins, sér í lagi með hliðsjón af framtíð verslunar á svæðinu.
Að því loknu verða almennar umræður.
Fundurinn hefst klukkan 12:00 og er haldinn á annarri hæð Sólon í Bankastræti.
Fulltrúar Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg áttu fund með fulltrúum borgaryfirvalda vegna fyrirhugaðra framkvæmda í miðbænum að morgni föstudagsins 31. janúar. Að hálfu borgarinnar sátu fundinn Auður Ólafsdóttir og Þór Gunnarsson og kynntu framkvæmdir. Að hálfu rekstraraðila voru mættir Gunnar Guðjónsson, gleraugnakaupmaður og varaformaður Samtaka kaupmanna við Laugaveg, Helgi Njálsson, stjórnarmaður í samtökunum, Sigurpáll Grímsson, rakari á Klapparstíg, Björn Jón Bragason, framkvæmdastjóri Samtaka kaupmanna við Laugaveg, og gleraugnakaupmennirnir Gylfi Björnsson og Anna Þóra Björnsdóttir.Auður og Þór héldu í upphafi fundarins kynningu á fyrirhuguðum framkvæmdum, en í mars er áformað að hefja framkvæmdir við Hverfisgötu frá Vitastíg og að Snorrabraut. Áætlað er að þeim ljúki í júlí eða ágúst. Framkvæmdir við Hverfisgötu neðan Ingólfsstrætis og að Lækjartorgi eiga að hefjast síðar á árinu. Þá er gert ráð fyrir framkvæmdum í Pósthússtræti frá marsmánuði og fram í júlí, en viðbúið að þær framkvæmdir tefjist vegna fornleifarannsókna. Framkvæmdir á Hverfisgötu, milli Ingólfsstrætis og Klapparstígs munu ekki hefjast á þessu ári að tillitssemi við verktaka sem vinnur að byggingu á svokölluðum Hljómalindarreit. Í máli rekstaraðila á fundinum kom fram að þeir vildu að sama tillit yrði tekið til hagsmuna rekstrar þeirra og tekið er til verktakans, en varla hefur verið gætt neins samráðs við rekstaraðila á svæðinu. Í máli fulltrúa borgarinnar kom líka fram að gatnamótum Hverfisgötu og Klapparstígs yrði að loka aftur vegna framkvæmda, en rekstaraðilar gagnrýndu harkalega miklar lokanir á þvergötum meðan á framkvæmdum hefur staðið.
Í máli rekstaraðila kom fram mikil óánægja með framkvæmdir við Hverfisgötu sem hafa dregist úr hömlu. Flestir voru þeirra skoðunar að rétt væri að hlífa svæðinu við framkvæmdum þetta árið, en ef yrði af framkvæmdum þyrfti að huga miklu betur að hagsmunum rekstrarins en verið hefði. Allar mótvægisaðgerðir hefði skort. Til að mynda væri afar brýnt að setja upp merkingar varðandi það hvar bílastæði mætti finna og hvar bílastæðahús væru. Mikið rask hefur í för með sér tekjutap fyrir verslanir og það getur skipt tugum prósenta. Þá þekkjum við í gegnum tíðina ótalmörg dæmi um fyrirtæki sem hafa lagt upp laupana vegna framkvæmda sem drógust á langinn og líklega er Ingólfstorg einna versta dæmið. Nánast öll verslun hvarf af því svæði vegna framkvæmda við torgið.
Fulltrúar borgarinnar kynntu einnig fyrirhugaðar breytingar á Frakkastíg, en þær eiga að hefjast 2015. Til stendur að fjarlægja meira en helming allra bílastæða við götuna. Þannig verða öll bílastæði tekin vestanmegin, en þar mun koma hjólreiðastígur. Þá verða mun færri bílastæði hægramegin. Björn Jón benti á það á fundinum að fasteignaeigendur á þessu svæði greiddu hæstu fasteignagjöldin á landinu og hefðu greitt fyrir öll bílastæðin. Það væri skerðing á stjórnarskrávörðum eignarréttindum fasteignaeigenda að fjarlægja mikinn fjölda bílastæða sem í mörgum tilfellum kollvarpaði rekstargrundvelli fyrirtækja í nágrennninu. Borgin gæti ekki farið fram með slíkum hætti án þess að skapa sér bótaskyldu.
Athygli vakti á fundinum að fulltrúar borgarinnar gátu litlu um það svarað hvar í kerfinu ákvarðanir væru teknar eða hvaðan hugmyndir að einstökum breytingum hefðu komið.
Því miður er ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þróun mála og rétt að rekstaraðilar komi sínum sjónarmiðum enn betur á framfæri við borgaryfirvöld. Ekki hvað síst kjörna fulltrúa – nú í aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda hafa því ákveðið að boða til opins fundar hinn 5. mars nk. með fulltrúum allra framboða til borgarstjórnarkosninga. Fundurinn verður haldinn á annarri hæð Sólon í Bankastræti og hefst klukkan 12:00.