Jón & Óskar er alhliða úra- og skartgripaverslun, sem var stofnsett árið 1971. Verslunin er staðsett að Laugavegi 61, Kringlu og Smáralind, og er ein stærsta og glæsilegasta úra- og skartgripaverslun á Íslandi.
Eigendur og stofnendur fyrirtækisins eru Jón Sigurjónsson, gullsmíðameistari og Óskar Óskarsson,úrsmíðameistari. Verslunin var fyrst til húsa að Laugavegi 70 í 50 fermetra hálf niðurgröfnu rými en þegar reksturinn fór að sprengja utan af sér þessa fáu fermetra stækkuðu þeir verslunina til austurs yfir í húsið við hliðina á. Það var síðan árið 1995 sem verslunin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði að Laugavegi 61 og varð þar með stærsta úra-og skartgripaverslun landsins.
Í versluninni eru félagar í fagfélögum úra og gullsmíða og bjóða vandaða og persónulega þjónustu. Þeir hafa umboð fyrir fjölda vörumerka en milliliðalaus viðskipti tryggja bestu verðin.
Verslunin er ein af rótgrónustu verslunum í miðbænum og hefur 40 ára reynslu og þekkingu fram að færa.
Í versluninni er boðið upp á notalega og góða aðstöðu og sérstakt herbergi til að skoða trúlofunar-og giftingarhringa í ró og næði.
Þeir sem ekki hafa tök á að komast í verslunina geta síðan pantað vörur í gegnum netið eða síma og fengið þær sendar með pósti.
Boðið er upp á greiðslukortaviðskipti, léttgreiðslur og raðgreiðslur og tax-free fyrir þá sem eru að fara úr landi.
Lágmarksábyrgð á vörum er tvö ár en margar vörur eru með víðtækari ábyrgð og er það þá sérstaklega tekið fram.
Kynntu þér söguna okkar með því að smella hér.