Hinn 7. mars síðastliðinn voru borgarstjóra afhentir listar með nöfnum 48 eigenda rótgróinna verslana og verslunarhúsnæðis við Laugaveginn í Reykjavík sem mótmæla öllum frekari áformum borgaryfirvalda um lokun götunnar fyrir bílaumferð. Undanfarin ár hafa verið gerðar tilraunir til að loka Laugavegi fyrir bílaumferð, en mjög hefur dregið úr verslun þá daga sem götunni er lokað. Flestir viðskiptavinir verslana á þessu svæði koma líka gagngert til að versla í tilteknum búðum. Ef aðgengi að verslunum er skert hefur það óhjákvæmilega í för með sér að stór hluti viðskiptavina leitar annað. Þá er lokun götunnar aðför að ferðafrelsi aldraðra, öryrkja og annarra þeirra sem eiga erfitt með gang.
Stuðningsmenn lokunar benda á að víða erlendis þrífist göngugötur vel sem verslunargötur, en slíkt hefur ekki gefið góða raun hér á landi og eru ástæður þess vafalaust margar, svo sem óblíð veðrátta og mikil notkun fjölskyldubílsins. Austurstræti var án efa glæsilegasta verslunargata bæjarins framan af síðustu öld, en lokun götunnar drap svo að segja endanlega verslun við Austurstræti og nálægar götur, en fjöldi búða var áður í Hafnarstræti, Aðalstræti og fleiri götum þar í kring. Þetta ætti að vera mönnum víti til varnaðar.
Borgaryfirvöld kynntu nýverið áform sín um stórhækkun bílastæðagjalda, en gert er ráð fyrir hækkunum um 67 til 88 prósent, auk þess sem til stendur að lengja mjög þann tíma sem skylt verður að greiða í gjaldmæla í miðborginni. Svo virðist sem ástæða þess að borgaryfirvöld ráðast nú í stórhækkun á bílastæðagjöldum sé almenn andúð þeirra á einkabílnum og markmiðið sé að fæla fólk frá því að koma á bílum í miðborgina. Slíkar aðgerðir geta ekki leitt til annars en minni verslunar. Viðskiptavinir vilja koma á sínum bíl og leggja honum nærri verslunum, ella fara þeir annað.
Á tímum almenns samdráttar í smásöluverslun væri rétt að borgaryfirvöld tækju höndum saman með kaupmönnum á svæðinu og stuðluðu að aukinni verslun. Liður í því gæti verið lækkun bílastæðagjalda og fjölgun stæða. Að sama skapi myndi það auðvelda aðgengi að búðum að fella niður gjaldskyldu á svæðum nærri Laugavegi. Verslun við aðalverslunargötur borga og bæja Bretlands hefur átt mjög undir högg að sækja síðustu ár og misseri. Þar í landi hefur mikið verið rætt um leiðir til að auðvelda fólki að komast á bílum sínum í miðborgirnar, meðal annars með lækkun bílastæðagjalda og niðurfellingu gjaldskyldu í nágrenni aðalverslunargatna.
Með lokunum gatna og hækkun bílastæðagjalda er beinlínis vegið að lífsviðurværi hundraða verslunarmanna, kaupmanna, annarra rekstraraðila og starfsmanna fyrirtækja þeirra, auk þess sem virði verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á svæðinu er stórlega skert.
Eftir því sem verslunum fækkar í miðborginni fjölgar öldurhúsum, en vera kann að borgaryfirvöld stefni að því að eingöngu slík starfsemi fái þrifist í miðborg Reykjavíkur. Líklega eru þó fleiri þeirrar skoðunar að í miðborg Reykjavíkur eigi að geta þrifist verslun og til þess að svo megi vera til frambúðar verða borgaryfirvöld að láta af áformum sínum um lokun gatna og hætta öðrum skemmdarverkum gegn versluninni. Án blómlegra verslunarfyrirtækja er engin miðborg.
Grein þessi birtist í Fréttablaðinu hinn 28. mars 2012.