Gylfi Einarsson frá Tax Free var gestur stjórnar Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg 21. ágúst síðastliðinn. Hann ræddi þar talsvert um ástand og horfur í verslun á svæðinu.
Hann fór einnig yfir ýmis atriði varðandi verslunina, hvar hún er mest, hvaða daga er helst verslað á og hvernig best sé að bera sig að í viðskiptum við erlenda ferðamenn.
Gylfi hyggst draga saman statistik um verslun á okkar svæði og kynna bráðlega á fundi með félagsmönnum.