Í stórhýsinu að Laugavegi 91, þar sem Sautján var áður til húsa hafa íslenskir hönnuðir um sextíu vörumerkja hreiðrað um sig. Húsið var formlega opnað með viðhöfn á fimmtudaginn var að viðstöddu fjölmenni, en Dorrit Moussaieff forsetafrú klippti á borðann. Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg óska aðstandendum hönnunarhússins til hamingju með opnunina, en án efa mun þessi starfsemi efla mjög verslun og mannlíf við Laugaveg, aðalverslunargötu borgarinnar.