Framkvæmdastjóri félagsins hefur undanfarið verið í sambandi við markaðsstjóra og dreifingarstjóra Vífilfells og hafa þeir sýnt því mikinn áhuga að Coca-Cola lestin muni enn á ný aka niður Laugaveginn. Nú liggur fyrir að lestin mun aka niður Laugaveginn 15. desember kl. 17:00 og er það sérstakt fagnaðarefni. Stjórnin vill þakka stjórnendum Vífilfells fyrir samstarfið.